Ungum manni hefur verið gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til 9. september, en hann var fyrst úrskurðaður í gæsluvarðhald þann 5. apríl sl. Er maðurinn grunaður um fjölmörg brot, þar með talið stórfelldar líkamsárásir og rán. Samkvæmt geðmati og áhættumati lögreglu eru miklar líkur á að maðurinn, sem glímir við andleg veikindi og alvarlegan vímuvanda, haldi áfram að brjóta af sér en hann hefur enga iðrun sýnt vegna hegðunar sinnar sem hefur verið markalaus og óútreiknanleg allt frá barnæsku.
„Óútreiknanlegt“ ungmenni í miklum vanda - Veittist að móður sinni í anddyri lögreglustöðvarinnar og iðrast einskis