Samtök verslunar og þjónustu ásamt sjálfstæðum sérvöruverslunum með áfengi skora á Alþingismenn að setja skýran lagaramma um vefverslun með áfengi. Þrjú fyrirtæki sem selja áfengi í gegnum netið hafa sætt ákærum og eitt hefur verið sakfellt.
Í tilkynningu segir að neytendur hafi þegar gert upp hug sinn og vefverslun með áfengi sé orðin hluti af íslenskum veruleika. Samkvæmt könnunum hefur um þriðjungur landsmanna keypt áfengi í gegnum vefverslun.
Brýnt sé að Alþingi viðurkenni þessa stöðu og tryggi ábyrga starfsemi með virku eftirliti og skýrum reglum um starfsemina - til dæmis leyfisveitingar, opnunartíma, staðsetningar og aðgengi.