Kristján Kristjánsson segist ekki ætla að verja dögunum sínum úti á golfvelli eftir að hafa tilkynnt um starfslok á Bylgjunni, heldur sé hann á leiðinni í nýtt og mikilvægt starf. Það komi í ljós á næstu dögum hvað það verður.
Kristján, sem stýrði Sprengisandi á Bylgjunni í tæpan áratug, tilkynnti hlustendum á sunnudag að þetta hefði verið hans síðasti þáttur.
„Þetta hafði svo sem ekki langan aðdraganda og ég var ekki búinn að segja mörgum frá þessu,“ segir Kristján í Síðdegisútvarpinu á Rás 2, þar sem hann fer yfir ferilinn og rifjar upp skemmtileg augnablik.
Algjör firra
Kristján segist hafa fengið atvinnutilboð, fleiri en eitt, og eftir smá hugsun ákvað hann að taka einu tilboðinu. Hann segir ekkert til í sögusögnum um að stjórnarfólk Sýnar eða „auðvald“ hafi haft eitthvað með starfslok hans að gera.
„Það er algjör firra. Það hefur aldrei nokkur maður af hálfu neinna hagsmunasamtaka eða fyrirtækja, eða yfirhöfuð nokkur maður, reynt að skipta sér af mér eða hafa áhrif á það sem ég er að gera.“
Allar slíkar samsæriskenningar séu rakið bull.
Uppruni Íslendinga vakti mesta athygli
Stjórnmál, menntamál og heilbrigðismál eru meðal þeirra málaflokka sem hafa verið hvað mest til umfjöllunar í Sprengisandi.
Kom það Kristjáni því nokkuð á óvart að sá þáttur sem vakti hvað mesta athygli var viðtal við Gísla Sigurðsson rannsóknarprófessor hjá Árnastofnun um uppruna Íslendinga.
„Þetta kom mér dálítið á óvart,“ rifjar Kristján upp.
Hægt er að hlusta á viðtalið við Kristján í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.