Þriggja daga opinber heimsókn forsetahjónanna til Eistlands hófst í morgun.
Móttökuathöfn var á Ráðhústorginu í Tallinn og að henni lokinni gengu Halla Tómasdóttir, forseti, og fylgdarlið að Frelsistorginu þar sem blómsveigur var lagður að minnisvarða um sjálfstæðisbaráttu eistnesku þjóðarinnar.
Því næst sat Halla fund með Alar Karis, forseta Eistlands.
Sátu viðskiptaþing um gervigreind
Halla tók einnig þátt í dagskrá á fjölmennu viðskiptaþingi þar sem ræddar voru áskoranir á sviði gervigreindar.
Dagskránni í dag lýkur á hátíðarkvöldverði í boði eistnesku forsetahjónanna í Arvo Pärt menningarmiðstöðinni í Laulasmaa.
Markmið heimsóknarinnar er að styrkja tengsl landanna.