Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, var allt annað en sáttur við spurningu sem Ari Edwald, oddviti flokksins í borginni, fékk í umræðuþætti RÚV í gærkvöldi vegna sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara í dag.
„Eiginlega kostulegt að Ríkisútvarpið hefji kosningasjónvarp sitt á misheppnaðri tilraun til að stilla Miðflokknum upp við vegg,“ sagði Snorri í færslu á Facebook-síðu sinni.
Spurningin sem Ari fékk snerist um umdeilda ræðu sem Sverrir Helgason flutti á kosningaviðburði ungliðahreyfingar Miðflokksins á dögunum. Spurningin sem Ari fékk var svohljóðandi:
„Ari, frambjóðandi Miðflokksins í Kópavogi og varaformaður flokksins hafa talað gegn regnbogafánanum í skólum og ungliðahreyfingin ykkar fékk nýverið ræðumann til sín á kosningafund sem kallar sig kynþáttaraunhyggjumann og hefur talað fyrir fjöldabrottvísunum á innflytjendum. Ég ætla bara að spyrja þig, ertu sáttur við þetta?“
Ari svaraði því til að þetta væri skrýtið upplegg gagnvart Miðflokknum. „Þú ert að tala um eitthvað djamm hjá ungliðum hjá Miðflokknum þar sem ungur maður kemur í míkrófón og lýsir sínum skoðunum. Það er ekki einu sinni verið að vitna í þær skoðanir heldur eitthvað sem hann setti á samfélagsmiðla fyrir einhverjum árum áður.“
Vísaði Ari svo í ummæli formanns ungliðahreyfingarinnar sem hefur sagt að umræddur aðili talaði ekki fyrir ungliðahreyfingu flokksins á neinn hátt. Varðandi Snorra sagði Ari að hlustað hafi verið á það sem hann sagði ekki en ekki það sem hann sagði.
Snorri tók undir þessi orð Ara á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi.
„Eins og frábær oddviti okkar bendir á er hann sannarlega forvitnilegur, þessi áhugi fjölmiðla á að ræða frekar það sem frambjóðendur Miðflokksins hafa ekki sagt en það sem þeir hafa sagt. Þetta þekkjum við vel sem erum í forsvari fyrir Miðflokkinn en maður hefur ekki oft séð þetta eins grímulaust, og það kvöldið fyrir kjördag.“
Snorri bætti svo við:
„Það má ekki gleymast að þessi slagsíða beinist í raun ekki gegn flokknum í sjálfu sér, heldur mun frekar gegn þeim sífellt stækkandi hluta þjóðarinnar sem hann er fulltrúi fyrir. Ég tek fram að sá hópur getur reitt sig á að þessar tilraunir munu ekki bera árangur, heldur gera þær ekki annað en efla okkur í verkefninu. Við höfum aldrei verið sterkari.“