Félag spænskra lögreglumanna, JUPOL, segir mikinn fjölda kynferðisbrota hafa átt sér stað í Ceuta eftir innrásina í borgina þar sem tugþúsundir manna frá Marokkó ruddust inn í borgina.
Félagið varar við því að slíkar árásir muni halda áfram daglega verði ekki gripið til aðgerða og svo virðist sem algert úrræðaleysi ríki í borginni.
JUPOL segir lögreglumenn enn ekki hafa fengið fyrirmæli til að ná aftur stjórn á þeim svæðum þar sem ógnin er mest.
„Það hafa verið kynferðisárásir á hverjum degi í Ceuta,“ segir í færslu JUPOL þar sem vísað er til ummæla Lauru García, talsmanns félagsins, í spænska sjónvarpsþættinum En Boca de Todos.
Segir þúsundir enn á götum borgarinnar
JUPOL segir meira en tvær vikur liðnar frá því sem félagið sjálft kallar „innrásina“ án þess að lögreglumenn hafi fengið fyrirmæli um að ná aftur stjórn á svæðum sem innrásarmennirnir hafa hreinlega tekið yfir.
„Þúsundir manna eru enn á götunum, sumir í ólöglegum búðum, á meðan samstarfsmenn okkar standa áfram frammi fyrir neyðarástandi án þess að fá fyrirmæli um hvað við eigum að gera til að snúa þessari stöðu við,“ segir í tilkynningunni.
Undanfarnar vikur hafa komið fram fjölmargar frásagnir af stúlkum og ungum konum sem leita skjóls hjá lögreglu af ótta við kynferðisofbeldi en samkvæmt spænskum fjölmiðlum og lögregluheimildum hafa fjölmargar konur og stúlkur þegar orðið fyrir kynferðisárásum, þar á meðal nauðgunum og hópnauðgunum og er sagt að sum fórnarlömbin séu jafnvel á barnsaldri.
A doctor in Ceuta is almost crying on live television.
Every hospital is completely overrun with migrants. Rooms are full. Medicine is running out. They even opened a dedicated hospital for migrants, and that one is full too.
Doctors are afraid to treat them.
They’re scared… pic.twitter.com/rcU2qaxViu— Yossi BenYakar (@YossiBenYakar) August 16, 2026
Stúlkur leita skjóls hjá lögreglu
Heimildirmenn innan lögreglunnar hafa lýst því hvernig stúlkur og konur safnast saman í grennd við lögreglubíla og lögreglusveitir þar sem þær telja sig öruggari.
JUPOL hefur gagnrýnt spænsk stjórnvöld harðlega fyrir viðbrögðin við ástandinu og segir lögreglumenn standa frammi fyrir grafalvarlegri ógn án þess að fá fyrirmæli um hvernig eigi að bregðast við.
🗣️“Se va a agresión sexual al día en #Ceuta”.
❌ Han pasado más de dos semanas desde la invasión y seguimos sin recibir órdenes operativas para recuperar el control de las zonas ocupadas.
‼️Miles de personas continúan en las calles, algunas en asentamientos ilegales, mientras… pic.twitter.com/e3Z1pmFAm1
— JUPOL (@JupolNacional) August 17, 2026