Tveir menn voru handteknir vegna drápsins í tveimur Evrópuríkjum í síðustu viku. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greindi ekki frá því hvar þeir hefðu verið handsamaðir.
Spænskir fjölmiðlar sögðu frá því á föstudag að annar þeirra hefði verið handtekinn í aðgerðum þarlendrar lögreglu við hótel í miðborg Barcelona.
Aðgerðin er sögð hafa átt sér stað þriðjudaginn 11. mars. Fjölmiðillinn El Periodico segir að sá handtekni sé pólskur ríkisborgari.
Spænskir miðlar vitna allir í þarlenda ríkislögreglu um að bráðabirgðaniðurstaða krufningar á manninum sem var drepinn á Kársnesi hafi leitt í ljós að hann hafi verið stungið ítrekað og að ætandi vökva hafi verið skvett á hann.