Kristilega hljómsveitin Demon Hunter hefur lögsótt streymisveituna Netflix vegna myndarinnar Kpop Demon Hunters. Að sögn lögmanna sveitarinnar er verið að stela lögvörðu vörumerki sveitarinnar.Miðillinn Blabbermouth greinir frá þessu.Hin bandaríska kristilega þungarokkssveit Demon Hunter hefur verið starfrækt frá aldamótum og gengið ágætlega. Sveitin hefur selt um 600 þúsund plötur og er vinsæl hjá hægrisinnuðum rokkurum.
Kristileg hljómsveit lögsækir Netflix vegna Kpop Demon Hunters