„Mig langaði bara að komast burt frá þessu“

„Mig langaði bara að komast burt frá þessu“

„Mig langaði bara að komast burt frá þessu“

Bróðir Andra Más Mortensen Birgissonar gaf skýrslu á þriðja degi aðalmeðferðar í Reykholtsmálinu. Hann sagðist ekki hafa beitt brotaþola í málinu ofbeldi eða séð að því hafi verið beitt. Hann bar þó ítrekað fyrir sig minnisleysi.

Að lokum baðst hann undan skýrslutökunni þar sem hún reyndist honum of erfið.

Brotaþoli segir að hann hafi verið beittur ofbeldi af Andra og manninum sem kom með honum í fyrstu. Bróðirinn sagðist ekki muna eftir því að Andri eða Ingunn hefðu beitt manninn ofbeldi. Andri er sakaður um mikið ofbeldi en Ingunn er sökuð um að hafa slegið manninn með hnúajárnum. Brotaþoli sagði að bróðirinn hefði beitt sig ofbeldi að minnsta kosti einu sinni með því að slá sig en bróðirinn kannaðist ekki við það.

Allir sem eru ákærðir í málinu hafa nú komið fyrir dóm og gert er ráð fyrir að brotaþoli gefi skýrslu á morgun

Kallaður í Reykholt um miðja nótt

Bróðirinn sagði aðkomu sína að málinu vera þá að Andri Már hafi hringt í sig á laugardagsmorgni klukkan 4 og vakið hann. Andri Már hafi sagst vera í aðstæðum sem hann vildi alls ekki vera í og að hann þyrfti að ná í sig.

Hann hafi þá farið af stað í adrenalínsjokki. Áður en hann fór í Reykholt hafi hann náð í Ingunni, unnustu Andra Más, á Olís í Norðlingaholti.

„Svo mætum við þarna í Reykholt og þar er mikil móða,“ sagði hann og átti þá við að hann myndi ekki mikið. Andri Már hafi þó tekið af honum bíllyklana svo hann hafi ekki getað farið.

Hörmuleg lykt af blóði

Bróðirinn sagði að hann myndi ekki mikið eftir aðkomu á vettvangi. „Það eina sem ég man eftir er hörmuleg lykt af blóði,“ sagði bróðirinn sem kvaðst ekki hafa vitað hvaða aðstæður hann væri að fara í. Hann sagðist ekki hafa beitt brotaþola ofbeldi. Sækjandi sagði þó að brotaþoli teldi svo vera. Einnig sagðist bróðirinn ekki hafa orðið vitni að ofbeldi gegn brotaþola.

Hinn sextugi brotaþoli hafi átt erfitt með að hreyfa sig, tyggja og borða mat yfir höfuð. Bróðirinn segist nokkrum sinnum hafa rætt við brotaþola, þá um líf hans og fjölskyldu. Hann segist ekki vita af hverju hann talaði við hann. „Mér leið svakalega illa,“ sagði bróðirinn.

Bróðirinn kvaðst hafa vitað að brotaþoli mætti ekki fara úr húsinu sínu en bar einnig við að hann hefði ekki mátt fara heldur.

„Mig langaði bara að komast burt frá þessu,“

Bróðirinn kvaðst ekki hafa hjálpað brotaþola þar sem hann hafi verið mjög hræddur við Andra Má og að hann hafi talið að hann myndi valda sér eða kærustu sinni skaða ef hann aðstoðaði ekki.

Í húsinu hafi verið nokkuð af verkfærum, til dæmis keðjusög og hann hafi séð Andra halda á bæði stálpípu og hamri.

„Mig langaði bara að komast burt frá þessu,“ sagði bróðirinn sem sagði að hann hefði búið til lygasögu til þess að komast frá aðstæðunum að minnsta kosti tvisvar en hann hafi alltaf verið kallaður til baka, ýmist af Andra eða Ingunni.

Á einum tímapunkti hafi bróðirinn unnið skemmdir á sínum eigin bíl svo hann gæti ekki snúið aftur í Reykholt. Hann hafi þó lagfært það seinna meir og snúið þangað aftur.

„Hann átti bara að fara upp á spítala.“

Á mánudeginum eftir ofbeldið á heimili brotaþola segir bróðirinn að hann hafi aðstoðað við að koma honum í flug. Andri hafi fyrirskipað að bróðir hans skyldi sitja í miðju bílsins en að brotaþoli og Ingunn væru sitt hvoru megin við hann. Bróðirinn segir að hann hafi talið að maðurinn hefði ekki átt að vera færður úr húsinu.

„Hann átti bara að fara upp á spítala. Hann var ekki að labba eða borða. Hann átti bara að fara upp á spítala,“ sagði hann.

Bróðirinn lýsir ferðinni til Keflavíkur með brotaþola og sagði að nokkur stopp hefðu verið gerð á leiðinni, meðal annars heima hjá Andra þar sem töskur og fleira hefðu verið borin inn en einnig hefði verið stoppað við í búð sem selur rafrettur.

„Það næsta sem ég man eftir er að við erum lögð fyrir utan Símann,“ sagði hann. Hann kvaðst ekki hafa vitað hvers vegna þau voru þar.

Í ákæru segir að starfsmenn símaverslunar hafi verið blekktir til að gefa út rafræn skilríki fyrir brotaþola. Þau voru svo notuð síðar meir til að taka fé út af reikningum hans en einnig við kaup á flugmiða.

Þegar bróðirinn var spurður út í það hvort brotaþoli hefði fengið hjálp við að kaupa flugmiðana.

„Ég myndi ekki segja að þetta hafi verið að hjálpa,“ sagði bróðirinn við því.

„Hvað myndir þú kalla þetta þá?“ spurði saksóknari.

„Ofbeldi,“ svaraði bróðirinn þá.

Var og er hræddur við Andra Má

Eftir að brotaþoli hafi verið farinn úr landi segist bróðirinn muna eftir sér í Keflavík þar sem Andri Már hafi farið inn í hús félaga síns og verið ofurglaður.

Síðar meir hafi þau verið stöðvuð á Sæbrautinni af lögreglu þar sem Andri Már hafi keyrt of hratt. Bróðirinn sagðist hafa vitað til þess að Andri hefði drukkið fyrr um daginn. Hins vegar var þremenningunum sleppt með aðvörun.

Bróðirinn segir að vikan eftir að frelsissviptingin fór fram hafi verið í mikilli móðu. Hann viðurkenndi þó að hann hafi móttekið peninga eftir atvikið. Hann sagðist ekki hafa vitað að peningarnir hefðu borist ef reikningi brotaþola. Það hafi komið í ljós eftir að hann var handtekinn.

Hann viðurkenndi þó við spurningar sækjandans að hann hefði farið í hraðbanka til þess að láta Andra Má, bróður sinn, fá peninga. Einnig var honum kunnugt um að Andri Már hefði keypt dýra hluti, líkt og skartgripi, eftir að brotaþoli fór úr landi. Sjálfur sagðist hann ekki muna eftir því hvort hann hefði notað peningana sem hann fékk.

Þegar verjandi spurði bróðurinn um samband hans við Andra Má sagðist hann vera virkilega hræddur við hann, sérstaklega í dag. Hann lýsti tveimur atvikum þar sem Andri varð mjög reiður. Annars vegar þegar hann og Ingunn hafi rifist í tjaldútilegu og komið blá og marin úr tjaldi sínu.

Hins vegar þegar hann og fjölskylda hafi aðstoðað við að fjarlægja muni Andra úr íbúð sem hann dvaldi í ásamt fyrri barnsmóður sinni. Þegar Andra bar þar að garði hafi hann hótað föður sínum og öðrum og kastað í þau klökum og snjó og keyrt að þeim hótandi líkt og hann hafi ætlað að keyra yfir þau.

„Ef maður sagði vitlausan hlut við hann gat hann blossast upp í reiði,“ segir bróðir Andra.

Skýrslutakan reyndist of erfið

Hádegishlé var tekið áður en unnt var að klára skýrslu bróðurins.

Eftir hádegishlé spilaði ákæruvaldið upptökur af því þegar Andri Már reyndi á laugardegi að taka út peninga af korti brotaþola en pin-númerið reyndist rangt. Þar má heyra í Ingunni og bróðurnum reyna að fá pin-númer upp úr brotaþola.

Bóðirinn sagðist ekki muna eftir þessu.

Í annari upptöku frá því klukkan 20:19 sama dag, virðast bróðirinn og Andri Már vera að ræða um fjárhagsleg málefni brotaþola. Bróðirinn sagðist ekkert muna eftir þessu.

Hann sagðist þá finna fyrir ótta og bað um að tekið væri hlé. Skýrslutaka hélt ekki áfram þar sem bróðirinn kvaðst ekki treysta sér til að halda áfram. Verjandi hans sagði að umbjóðandi sinn hefði ekki heyrt rödd bróður síns, Andra Más, í að verða tvö ár og að það hefði djúpstæð áhrif á hann.

#bara #burt #komast #langaði #mig


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-19-mig-langadi-bara-ad-komast-burt-fra-thessu-484339

📰 Aðrar fréttir

4 af 5 stærstu sláturhúsunum sækjast eftir Halal vottun í komandi sláturtíð
📅 19.08.2026 👁️ 0
4 af 5 stærstu sláturhúsunum sækjast eftir Halal vottun í komandi sláturtíð
Frá árinu 2010 hafa sláturhús á Íslandi sóst eftir svokallaðri Halal-vottun á lambakjöt. Fjögur af fimm stærstu sláturhúsum landsins ætla að sækjast e...
Fjár­mála­ráð­herra og vinnu­markaðurinn bregðast við vaxta­hækkun - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Fjár­mála­ráð­herra og vinnu­markaðurinn bregðast við vaxta­hækkun - Vísir
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra mætir í fréttasett og svarar fyrir viðbrögð ríkisstjórnarinnar. Síðar í fréttatímanum mæta Þorsteinn Víglundss...
Flugdólgur olli því að flugi var aflýst - „Það má ekki kalla neinn kuntu í dag“
📅 19.08.2026 👁️ 0
Flugdólgur olli því að flugi var aflýst - „Það má ekki kalla neinn kuntu í dag“
Flugdólgur sem olli því að flugi frá Manchester til Tyrklands var aflýst er í vondum málum. Flugfélagið Jet2 vill fá himinháar skaðabætur frá honum.Ei...
SVÞ og netáfengisverslanir skora á Al­þingi - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 1
SVÞ og netáfengisverslanir skora á Al­þingi - Vísir
Samtökin og netverslanir með áfengi standa að heimasíðunni Valfrelsi.is. „upplýsingasíða um hvernig áfengissölu er háttað á Íslandi og hvernig megi sk...
Canada and US say they are finalising a trade deal, but details remain murky
📅 19.08.2026 👁️ 0
Canada and US say they are finalising a trade deal, but details remain murky
Prime Minister Carney hailed "significant progress" in trade talks as the two countries seek to hammer out final details ahead of a new weekend tariff...
Ráðuneytið uppfærir mat á framlagi til ESB við aðild
📅 19.08.2026 👁️ 1
Ráðuneytið uppfærir mat á framlagi til ESB við aðild
Utanríkisráðuneytið hefur uppfært mat sitt á því hver kostnaðurinn við aðild að Evrópusambandinu gæti verið. Matið er birt á vefsíðu stjórnarráðsins. ...
Lýsir á­falli vegna vinnu­bragða gamla meiri­hlutans - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Lýsir á­falli vegna vinnu­bragða gamla meiri­hlutans - Vísir
Greint var frá því í gær að verð á máltíðum afgreiddum af Reykjavíkurborg í heimsendingu, til íbúa í þjónustuíbúðum og í félagsmiðstöðvum aldraðra mun...
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir meintum Kársnesmorðingjum - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir meintum Kársnesmorðingjum - Vísir
E. Agnes Eide Kristínardóttir yfirlögregluþjónn staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Tveir menn voru handteknir vegna drápsins í tveimur Evrópu...
Hætta notkun andlitsgreiningar eftir að viðskiptavinur var ranglega sakaður um þjófnað
📅 19.08.2026 👁️ 0
Hætta notkun andlitsgreiningar eftir að viðskiptavinur var ranglega sakaður um þjófnað
Matt Arnold var ranglega sakaður um þjófnað í stórmarkaðnum Sainsbury's í Lundúnum eftir að gervigreind gerði mistök. Honum var vísað út úr versluninn...
Students wait for GCSE and BTec grades as app launches for 750 schools in England
📅 19.08.2026 👁️ 0
Students wait for GCSE and BTec grades as app launches for 750 schools in England
Some pupils in England will be able to see their grades on their phones from 11:00 BST on Thursday.
Gæsluvarðhald framlengt vegna manndráps á Kársnesi
📅 19.08.2026 👁️ 1
Gæsluvarðhald framlengt vegna manndráps á Kársnesi
Gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem eru grunaðir um að hafa banað öðrum manni á Kársnesi 9. ágúst hefur verið framlengt fram í næstu viku.Þetta stað...
Skora á Alþingi að skýra ramma um áfengissölu
📅 19.08.2026 👁️ 0
Skora á Alþingi að skýra ramma um áfengissölu
Samtök verslunar og þjónustu ásamt sjálfstæðum sérvöruverslunum með áfengi skora á Alþingismenn að setja skýran lagaramma um vefverslun með áfengi. Þr...
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: Það er verið að blekkja fólk vísvitandi
📅 19.08.2026 👁️ 0
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: Það er verið að blekkja fólk vísvitandi
Það er einkennilegt að halda því fram að atkvæðagreiðslan 29. ágúst muni soga okkur inn í Evrópusambandið ef við segjum já. Þátt í þessu taka menn, se...
Kærastinn var á staðnum - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 1
Kærastinn var á staðnum - Vísir
Panettiere og Brian Hickerson höfðu átt í stormasömu sambandi í nokkur ár. Hann hafði verið sakaður um að beita hana ofbeldi. Hann var ákærður fyrir h...
Rán­fugl gæddi sér á smáfugli í Vestur­bænum - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 1
Rán­fugl gæddi sér á smáfugli í Vestur­bænum - Vísir
„Þessi meistari var á Reynimelnum í gærkvöldi, um klukkan sex,“ segir Arnar Már Jónsmundsson íþróttapródúsent en hann sagðist ansi viss um að fuglinn ...
Forsetahjónin í opinberri heimsókn í Eistlandi​
📅 19.08.2026 👁️ 0
Forsetahjónin í opinberri heimsókn í Eistlandi​
Þriggja daga opinber heimsókn forsetahjónanna til Eistlands hófst í morgun.Móttökuathöfn var á Ráðhústorginu í Tallinn og að henni lokinni gengu Halla...
Gæti séð fyrir sér að kjara­samningar haldi - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Gæti séð fyrir sér að kjara­samningar haldi - Vísir
„Þessi stýrivaxtahækkun upp í átta prósent er klárlega endanleg sönnun þess að meginmarkmið samninganna sem við undirrituðum 2024 hafa ekki náðst, og ...
OpenAI dregur úr þjálfun eftir að gervigreindarlíkön gerðu tölvuárás óumbeðin
📅 19.08.2026 👁️ 0
OpenAI dregur úr þjálfun eftir að gervigreindarlíkön gerðu tölvuárás óumbeðin
OpenAI segist hafa dregið úr þjálfun þróuðustu gervigreindarlíkana sinna til að bæta öryggi. Gervigreindarlíkön fyrirtækisins gerðu tölvuárás í sumar,...
„Sósíalisti“ sigrar óvænt í Flórída
📅 19.08.2026 👁️ 1
„Sósíalisti“ sigrar óvænt í Flórída
„Sósíalisti“ sigrar óvænt í Flórída Óvænt úr­slit urðu í for­vali Demó­krata­flokks­ins í Flórída fyr­ir kosn­ing­ar til öld­unga­deild­ar­inn­ar, þar...
Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur - Vísir
Enginn fundur hefur verið skipulagður en Trump hefur lagt til við sitt fólk að hann gæti hitt Kim þegar hann fer næst til Asíu, sem gæti verið í nóvem...
Svona þröngvar Íslam sér inn í skólana
📅 19.08.2026 👁️ 0
Svona þröngvar Íslam sér inn í skólana
Svona þröngvar Íslam sér inn í skólana Fréttin19. ágúst 2026Erlent, Helga Dögg Sverrisdóttir, SkólamálLeave a Comment Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar...
Móðir freistaði þess að fá ákvörðun TR um meðlagsgreiðslur hnekkt - Sakaði barnsföður um hefndaraðgerðir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Móðir freistaði þess að fá ákvörðun TR um meðlagsgreiðslur hnekkt - Sakaði barnsföður um hefndaraðgerðir
Faðir stúlku leitaði í mars til Tryggingastofnunar ríkisins og óskaði eftir því að stofnunin hefði milligöngu um meðlagsgreiðslur með dóttur hans. Móð...
„Óútreiknanlegt“ ungmenni í miklum vanda - Veittist að móður sinni í anddyri lögreglustöðvarinnar og iðrast einskis
📅 19.08.2026 👁️ 0
„Óútreiknanlegt“ ungmenni í miklum vanda - Veittist að móður sinni í anddyri lögreglustöðvarinnar og iðrast einskis
Ungum manni hefur verið gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til 9. september, en hann var fyrst úrskurðaður í gæsluvarðhald þann 5. apríl sl. Er...
Þor­steinn Leó orðinn pabbi - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 1
Þor­steinn Leó orðinn pabbi - Vísir
Parið greindi frá tíðindunum í sameiginlegri færslu á samfélagsmiðlum í dag. „Litli prinsinn okkar kom í heiminn þann 16. ágúst,“ segir í færslunni. J...
Lentu geim­flaug í fyrsta sinn - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Lentu geim­flaug í fyrsta sinn - Vísir
Eldflaugin er framleidd af fyrirtækinu LandSpace. Kínverjum hafði áður tekist að grípa fyrsta þrep Zhuque-3 eldflaugarinnar á hafi úti en það tókst þe...
Israel opens up tenders for controversial West Bank settlement project
📅 19.08.2026 👁️ 0
Israel opens up tenders for controversial West Bank settlement project
Plans to build on the so-called E1 area - east of Jerusalem - have long been internationally condemned and would in effect divide the occupied West Ba...
Israel opens up bids for highly-sensitive West Bank settlement project
📅 19.08.2026 👁️ 1
Israel opens up bids for highly-sensitive West Bank settlement project
Israeli plans to build on the area east of Jerusalem - which would divide the occupied West Bank in two - have long been internationally condemned.
Forseti, dómari og ICESAVE
📅 19.08.2026 👁️ 1
Forseti, dómari og ICESAVE
Forseti, dómari og ICESAVE Eft­ir að full end­ur­greiðsla vegna Ices­a­ve lá fyr­ir, sömdu ís­lensk stjórn­völd við Breta og Hol­lend­inga um að greið...
Salmonella outbreak: What we know so far
📅 19.08.2026 👁️ 1
Salmonella outbreak: What we know so far
Hundreds have fallen ill with salmonella infections in an outbreak linked to imported eggs.
Sagði skilið við Bylgjuna eftir spennandi atvinnutilboð
📅 19.08.2026 👁️ 0
Sagði skilið við Bylgjuna eftir spennandi atvinnutilboð
Kristján Kristjánsson segist ekki ætla að verja dögunum sínum úti á golfvelli eftir að hafa tilkynnt um starfslok á Bylgjunni, heldur sé hann á leiðin...
Fleiri spurningar vakna um samband Trumps við aðstoðarkonu
📅 19.08.2026 👁️ 0
Fleiri spurningar vakna um samband Trumps við aðstoðarkonu
Fleiri spurningar vakna um samband Trumps við aðstoðarkonu „Þú ert allt sem skipt­ir mig máli,“ sagði að­stoð­ar­kona Banda­ríkja­for­seta við hann. „...
Six injured after multi-vehicle collision in Adeje
📅 19.08.2026 👁️ 0
Six injured after multi-vehicle collision in Adeje
Six people, including two children aged two and 11, have been injured in a multi-vehicle collision on the TF-1 motorway in Tenerife.The accident happe...
'Incredible': SpaceX rocket spotted off Christmas Island coast
📅 19.08.2026 👁️ 0
'Incredible': SpaceX rocket spotted off Christmas Island coast
A SpaceX rocket that blasted off from Texas in July and crashed into the Indian Ocean hadn't been seen since - but now Christmas Island residents say ...
Orðið á götunni: Hnífjafn slagur og nei-ið beitir blekkingum– samt vex já-sinnum fiskur um hrygg
📅 19.08.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Hnífjafn slagur og nei-ið beitir blekkingum– samt vex já-sinnum fiskur um hrygg
Hiti færist nú í baráttuna um framhald aðildarviðræðna við ESB sem kosið verður um laugardaginn 29. ágúst. Auglýsingar birtast nú hér og hvar frá báðu...
Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu - Vísir
Aðeins tæpir 1,8 milljarða kílómetra skilja að stjörnuna S301 og risasvartholið Sagittarius A* í miðju Vetrarbrautarinnar okkar. Það er aðeins um fimm...
Lögreglan rannsakar hvort skotvopn hafi verið dregið upp í slagsmálum í Hafnarfirði í nótt - „Wtf er drengurinn með byssu?“
📅 19.08.2026 👁️ 1
Lögreglan rannsakar hvort skotvopn hafi verið dregið upp í slagsmálum í Hafnarfirði í nótt - „Wtf er drengurinn með byssu?“
Lögreglan í Hafnarfirði er með til skoðunar mál sem upp kom í Holtinu í nótt. Þrír drengir slógust og einn þeirra viritist draga upp skammbyssu og ota...
Hafi byrlað tólf ára fóstur­dóttur og nauðgað í­trekað - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Hafi byrlað tólf ára fóstur­dóttur og nauðgað í­trekað - Vísir
Í ákæru þess efnis, sem tekin var fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í dag, segir að maðurinn hafi, á sameiginlegu heimili þeirra [á Suðurnesjum] án samþyk...
Vilja banna frjáls ferða­lög ísraelskra ferða­manna á Ís­landi - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Vilja banna frjáls ferða­lög ísraelskra ferða­manna á Ís­landi - Vísir
Fyrir hönd sniðgönguhreyfingarinnar á Íslandi skrifa undir áskorunina þær Elsa María Blöndal, Katrín Harðardóttir, Margrét Kristín Blöndal og Sigurlau...
„Má ætla“ að aðild hefði ekki áhrif á veiðiheimildir staðbundinna fiskstofna
📅 19.08.2026 👁️ 0
„Má ætla“ að aðild hefði ekki áhrif á veiðiheimildir staðbundinna fiskstofna
Evrópusambandið hefur ekki almenna valdheimild til að mæla fyrir um eignarhald, notkun eða forræði yfir náttúruauðlindum aðildarríkja. Ráðstafanir rík...
Versluðu sígarettur af rúss­neskum sjó­mönnum: „Þetta var bara eins og gull“ - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Versluðu sígarettur af rúss­neskum sjó­mönnum: „Þetta var bara eins og gull“ - Vísir
Andri og Helgi eru fyrstu viðmælendur sex þátta seríunnar Milli vina þar sem tveir einstaklingar, sem tengjast persónulega, eiga einlægt samtal í hlýl...
Þurfa fjármagn svo Valaskjálf verði áfram samkomusalur
📅 19.08.2026 👁️ 0
Þurfa fjármagn svo Valaskjálf verði áfram samkomusalur
Óvíst er að fleiri dansleikir, tónleikar eða leiksýningar verði í félagsheimilinu Valaskjálf á Egilsstöðum. Eigendurnir íhuga að breyta salnum í gisti...
Meta gerði börn vísvitandi háð Instagram og Facebook
📅 19.08.2026 👁️ 1
Meta gerði börn vísvitandi háð Instagram og Facebook
Tæknirisinn Meta gerði börn vísvitandi háð samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram, að sögn fulltrúa um 30 ríkja sem höfðuðu mál gegn fyrirtækinu. Rét...
Gesta­fjöldi fjór­faldaðist á Kveld­úlfi - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Gesta­fjöldi fjór­faldaðist á Kveld­úlfi - Vísir
„Gestafjöldi var fjórfaldur á við í fyrra og fór allt vel fram. Við vorum alveg fáránlega heppin með veður, sólin skein allan tímann og fjörðurinn ska...
Meintur Kárs­nesmorðingi hand­tekinn í Barcelona - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Meintur Kárs­nesmorðingi hand­tekinn í Barcelona - Vísir
Tveir menn voru handteknir vegna drápsins í tveimur Evrópuríkjum í síðustu viku. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greindi ekki frá því hvar þeir hefðu v...
Train track defect found before Lewes derailment, report says
📅 19.08.2026 👁️ 1
Train track defect found before Lewes derailment, report says
Initial findings from an RAIB investigation show an "irregularity" at the site near Lewes.
Átakanleg játning mótleikara Hayden: Reykti heróín á frumsýningarkvöldinu
📅 19.08.2026 👁️ 1
Átakanleg játning mótleikara Hayden: Reykti heróín á frumsýningarkvöldinu
Ethan Suplee, sem lék ásamt Hayden Panettiere í kvikmyndinni Remember the Titans, minnist leikkonunnar með áhrifamiklum orðum. Hann opnar sig um leið ...
Kristileg hljómsveit lögsækir Netflix vegna Kpop Demon Hunters
📅 19.08.2026 👁️ 1
Kristileg hljómsveit lögsækir Netflix vegna Kpop Demon Hunters
Kristilega hljómsveitin Demon Hunter hefur lögsótt streymisveituna Netflix vegna myndarinnar Kpop Demon Hunters. Að sögn lögmanna sveitarinnar er veri...
Harmageddon | Hinn raunverulegi kostnaður við aðildarviðræður við ESB
📅 19.08.2026 👁️ 1
Harmageddon | Hinn raunverulegi kostnaður við aðildarviðræður við ESB
HarmageddonÞví er gjarnan haldið fram að aðildarviðræður við Evrópusambandið séu aðeins saklaus leið til að „kíkja í pakkann“. En viðræðurnar eru hvor...
Félag spænskra lögreglumanna segir kynferðisbrot daglegt brauð í Ceuta – Vargöld ríkir í borginni
📅 19.08.2026 👁️ 1
Félag spænskra lögreglumanna segir kynferðisbrot daglegt brauð í Ceuta – Vargöld ríkir í borginni
Félag spænskra lögreglumanna, JUPOL, segir mikinn fjölda kynferðisbrota hafa átt sér stað í Ceuta eftir innrásina í borgina þar sem tugþúsundir manna ...
Ragnar Þór svarar Hauki fullum hálsi og vill að hann biðjist afsökunar
📅 19.08.2026 👁️ 1
Ragnar Þór svarar Hauki fullum hálsi og vill að hann biðjist afsökunar
Ragnar Þór Pétursson, kennari og fyrrum formaður Kennarasambandsins, segir það óboðlegt að krefjast afsökunarbeiðni frá grunnskólakennurum landsins ve...