Aðför gegn kristni

Eftir Árna Má Jensson:
Árni Már Jensson fjallar í greininni um ofsóknir gegn kristnum í heiminum og vísar til nýrrar skýrslu Open Doors, World Watch List 2026. Greinin byggir á grein höfundar sem birtist áður í Morgunblaðinu og er hér í ritstýrðri útgáfu með leyfi hans.
Ofsóknir gegn kristnum hafa aldrei mælst meiri
Fólk sem trúir á Jesú Krist er nú mest ofsótti trúarhópur heimsins samkvæmt skýrslu Open Doors, World Watch List 2026, sem nær yfir tímabilið frá 1. október 2024 til 30. september 2025. Skýrslan sýnir að ofsóknir gegn kristnum hafa aldrei mælst meiri.
Samkvæmt niðurstöðum samtakanna:
- 388 milljónir kristinna búa við miklar ofsóknir eða mismunun vegna trúar sinnar og fjölgar þeim um átta milljónir frá fyrra ári.
- 4.849 kristnir voru myrtir vegna trúar sinnar á framangreindu tímabili, samanborið við 4.476 árið áður. Þar af áttu um 93% morðanna sér stað í Afríku sunnan Sahara og 3.490 í Nígeríu einni og sér.
- 4.712 kristnir voru handteknir, fangelsaðir eða sviptir frelsi vegna trúar sinnar.
- 3.632 kirkjur og kristnar eignir urðu fyrir árásum eða voru lokaðar.
- 224.129 kristnir voru hraktir frá heimilum sínum eða neyddir til að flýja vegna ofsókna. Það er aukning frá fyrra ári, þegar fjöldinn var 209.771.
Meðfylgjandi tafla sýnir efstu 20 löndin á lista Open Doors yfir þau ríki þar sem ofsóknir gegn kristnum eru mestar.
Röðun og stigagjöf byggjast á rannsókn samtakanna á aðstæðum kristinna í 50 löndum, þar sem skoðaðar eru ofsóknir á fimm sviðum lífsins: einkalífi, fjölskyldu, samfélagi, þjóðlífi og kirkjulífi.

Afríka sunnan Sahara í brennidepli ofbeldis
Fjórtán lönd á svæðinu eru nú á topp 50 listanum. Þrjú lönd á listanum, Súdan í 4. sæti, Nígería í 7. sæti og Malí í 15. sæti, eru jafnframt meðal þeirra ríkja þar sem ofsóknir gegn kristnum eru hvað alvarlegastar.
Í skýrslunni kemur fram að trúarlegt ofbeldi í Afríku sunnan Sahara eigi sér oft stað þar sem stjórnvöld eru veikburða og eiga erfitt með að tryggja öryggi borgaranna.
Athygli vekur að hlutfall þeirra afla sem bera ábyrgð á ofsóknum er mismunandi eftir löndum og svæðum. Þar koma meðal annars við sögu íslamskir öfgahópar, einræðisstjórnir, þjóðernissinnuð öfl og aðrir hópar sem vilja takmarka trúfrelsi.
Trúfrelsi er grundvallarmannréttindi
Í framangreindu samhengi er umhugsunarefni að þær þjóðir sem grundvalla gildi sín á kristinni trú skora hæst meðal allra þjóða í velsæld og mannréttindum á sama tíma og samfélög íslams eru neðar á slíkum listum.
Þegar skoðaðar eru skýrslur um ofsóknir gegn kristnum þarf ekki að koma á óvart að íslam trúin hafi verið nefnd rauðgræna bandalagið. Þegar skoðaðar eru skýrslur um ofsóknir gegn kristnum þarf ekki að koma á óvart að íslam trúin hafi verið nefnd rauðgræna bandalagið.
Hér er þó mikilvægt að greina á milli almennra trúaðra einstaklinga og þeirra öfgahópa sem beita ofbeldi í nafni trúarbragða.
Ofsóknir gegn kristnum og gyðingdómi um allan heim eiga rætur í fordæmi Múhameðs sem lagði grunn að jihad-hernaði í reglubókum hugmyndafræðinnar. Nokkuð sem framfylgt er með sértrúarsöfnuðum og múslimum óheimit að hunsa.
Þessar reglubækur jihad-hernaðar er að finna í Kóraninum og hadíðunum.
Áleitnar spurningar
Í ljósi þess að ofbeldi á sér gjarnan stað í höndum afskipta- og öfgahópa má spyrja hvers vegna vestrænir meginstraumsfjölmiðlar fjalli ekki um framangreindar ofsóknir og orsakir þeirra.
Og er það ekki siðferðileg og trúarleg skylda gagnvart bræðrum okkar og systrum, að kristin kirkja Vesturlanda fjalli opinberlega um þessar ofsóknir og orsakir þeirra frá ári til árs?
Heimildir: Open Doors, World Watch List 2026, og Kóraninn og hadíður.
Höfundur er fyrrverandi kvikmyndagerðarmaður og áhugamaður um frjálsa hugsun, lýðræði, kristna trú og gildi.