Samkeppniseftirlitið hefur kallað eftir gögnum frá olíufélögum til að meta hvort verðlækkanir úti í heimi hafi skilað sér til íslenskra neytenda.
Heimsmarkaðsverð á eldsneyti hefur lækkað frá því í september og farið hratt niður síðustu vikur. ASÍ og Félag íslenskra bifreiðaeigenda benda á að lækkunin hafi ekki skilað sér á dælunni hér heima. „En á móti kemur þá höfum við líka bent á að þetta megi að einhverju leyti skýra með seinu viðbragði að utan,“ segir Ágúst Arnórsson, hagfræðingur ASÍ. „Innlendi markaðurinn hækkaði ekki í takt við heimsmarkaðinn í sumar, sem var þá neytendum til hagsbóta, en núna þessar síðustu vikur erum við ekki að taka þessa lækkun inn.“
Það geti verið erfitt fyrir neytendur að átta sig á hvort verðið sé sanngjarnt í ljósi tíðra breytinga. „Sem getur verið ruglandi fyrir verðvitund,“ segir Ágúst. „Hinn almenni neytandi getur ekki verið að horfa á kvittun frá í fyrra og svo núna, þetta er ekki sambærilegt.“
„Ekkert skrýtið að neytendur séu pínulítið ringlaðir“
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að í ljósi lækkunar á heimsmarkaðsverði hafi verið kallað eftir upplýsingum frá olíufélögunum til að komast að því hvaða breytingar hafa orðið á innkaupsverði eldsneytis og hvernig þær hafa komið fram í verðlagningu til neytenda. „Að sjá nákvæm verð í innkaupum hjá eldsneytisfélögum núna, bera þau saman við útsöluverð og annað sem máli skiptir,“ segir Páll Gunnar.
Miklar sveiflur hafa verið á eldsneytisverði á árinu. Þegar kílómetragjald var sett á í upphafi árs voru opinber gjöld af eldsneyti felld niður og bensínlítrinn lækkaði um sirka hundrað krónur. Hernaðarátök í Miðausturlöndum leiddu til mikilla verðhækkana og til að bregðast við því lækkuðu stjórnvöld virðisaukaskatt á eldsneyti tímabundið í sumar.
„Það er ekkert skrýtið að neytendur séu pínulítið ringlaðir eftir þetta ár. Þess vegna skiptir máli að hagsmunasamtök á þessum vettvangi og hagsmunasamtök launþega fylgist vel með, en líka að við gerum það,“ segir Páll Gunnar.
Segja lækkanir skila sér út í verðið
Forsvarsmenn Orkunnar og N1 segja í svörum til fréttastofu að verðlækkanir hafi þegar skilað sér út í verðið. Framkvæmdastjóri N1 bendir á að hækkanir á innkaupsverði hafi ekki að fullu verið leiddar út í útsöluverð á árinu. Þrátt fyrir nýlegar lækkanir sé heimsmarkaðsverð á fullunnu bensíni enn um 46% hærra en í janúar og á dísilolíu um 81% hærra en í upphafi árs. N1 hafi lækkað eldsneytisverð frá 11. nóvember og muni halda því áfram á meðan þróun innkaupsverðs gefi tilefni til.
Framkvæmdastjóri Orkunnar segir að lækkanir hafi skilað sér út á dælu. Til að mynda hafi verð á bæði bensíni og dísil lækkað um fimm krónur í síðustu viku. Verðlagning taki mið af verði frá birgja. Óstöðugleiki í heimsmálunum hafi haft talsverð áhrif upp á síðkastið og skapað mikla óvissu.
Við vinnslu fréttarinnar höfðu ekki borist svör frá öðrum söluaðilum eldsneytis.