Náttúrufræðistofnun telur arnarvarp sumarsins 2026 vera í meðallagi samanborið við fyrri ár. Alls verptu 61 par en aðeins 41 kom ungum á legg, 58 talsins.
Árlega eru 100 óðul skoðuð af Náttúrufræðistofnun og telur stofnunin að 78 þeirra hafi verið setin í ár. Þá fannst einnig varp á þremur áður óþekktum stöðum.
Eins og áður segir voru 41 par sem komu upp ungum. Það þýðir að 20 pörum mistókst að koma upp ungum. Stofninn er talinn í hægum en öruggum vexti.
Leiðarritar mikilvægir í rannsóknum
Flest arnaróðul eru á vestanverðu landinu, frá Faxaflóa að Húnaflóa í norðri.
Aðeins tókst að setja leiðarrita á tvo unga í sumar vegna óhagstæðs veðurfars og aðgengi að óðulum var erfitt. Sökum þess drógust merkingar fram í ágúst og þá voru ungarnir orðnir stórir og hálffleygir.
Á vef Náttúrufræðistofnunar segir að með tímanum verði hægt að kortleggja ferðir arnanna betur og sjá hvaða leiðir þeir velja og hvar þeir dvelja. „Gögnin munu nýtast við mat á þýðingu einstakra svæða fyrir erni og við ákvarðanir um hvar beri að forðast framkvæmdir, til dæmis að reisa vindmyllur, enda eru þær örnum skeinuhættari en flestum öðrum fuglum.“
Á árunum 2019 til 2025 voru sendar settir á 80 arnarunga. 29 af þeim eru enn á lífi með virkan leiðarritara. Í sumar bættust tveir í hópinn og eru því sendar á 31 erni eins og sakir standa.