Rússnesk stjórnvöld hafa ekki uppfært opinbera tölu um fallna síðan í september 2022, þegar þau sögðu 5.937 hermenn hafa fallið.
Greiningin byggir á meira en 11 milljónum dánarvottorða sem tölvuþrjótahópar frá Úkraínu og Hvíta-Rússlandi komust yfir. Vottorðin eru frá rússnesku hagstofunni. Talið er að raunverulegi fjöldinn sé mun meiri, meðal annars vegna þess að týndir hermenn eru seinna og sjaldnar skráðir. Þeim fækki sömuleiðis mjög í gögnum frá þessu ári.
Síðasta ár mannskæðasta
Samkvæmt gögnunum létust um 20 þúsund manns á fyrsta ári innrásarinnar, 50 þúsund 2023 og rúmlega 134 þúsund 2024. Árið 2025 voru þeir nærri 200 þúsund, eða um 548 á dag að meðaltali. Meðaltalið frá upphafi er um 277. Vikuna sem hófst 5. maí 2025 féllu yfir fimm þúsund, 720 á sólarhring.
Til samanburðar féllu um 4.500 bandarískir hermenn yfir átta ára tímabil frá innrásinni í Írak 2003. Um helmingi færri féllu á tveimur áratugum í Afganistan.
Stríðið var á síðasta ári helsta dánarorsök rússneskra karla undir 65 ára aldri. Í 29% dánarvottorða með skráða dánarorsök var stríðið nefnt.
Hermennirnir síeldri og sífátækari
Þrátt fyrir mannfallið hefur víglínan lítið færst. Frá ársbyrjun 2023 hafa Rússar unnið um átta þúsund ferkílómetra, innan við tvö prósent af Úkraínu. Næstum 116 þúsund dauðsföll hafa verið skráð á Pokrovsk-svæðinu þar sem harðir bardagar hafa verið háðir frá 2023.
Meðalaldur þeirra sem falla hefur hækkað úr 34 árum 2022 í nærri 40 í ár. Næstum fimmtungur þeirra sem féllu í ár og aldur er skráður fyrir var eldri en 50 ára, en 6% fyrsta árið. Stjórnvöld hafa treyst á peningagreiðslur til sjálfboðaliða í stað nýrrar herkvaðningar, og þær höfða mest til eldri manna, samkvæmt umfjöllun miðilsins.
Mannfallið er mest í fátækum og afskekktum héruðum. Í átta fátækustu héruðunum er dánartíðni hermanna fjórfalt hærri en í þeim ríkustu. Guardian fann einnig meira en 7.300 líklega erlenda hermenn meðal hinna föllnu, frá 78 löndum utan fyrrverandi Sovétríkjanna, meðal annars Afríkuríkjum og Kólumbíu.