Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn tveggja barna sem fædd eru á hér á landi og eru systkini um vegabréf fyrir útlendinga. Þrátt fyrir að vera fædd á Íslandi eru börnin ekki með skráð ríkisfang neins staðar en foreldrar þeirra eru frá Sri Lanka. Byggði kæra til nefndarinnar ekki síst á því að börnin væru ríkisfangslaus en nefndin segir svo ekki vera, í skilningi laga.Bæði börnin eru með ótímabundið dvalarleyfi og hafa ekki búið annars staðar en á Íslandi.
Börn fædd á Íslandi fá ekki vegabréf - Hvergi með skráð ríkisfang