Við upptökur á þættinum Um land allt í grunnskólanum ákvað myndatökumaðurinn Egill Aðalsteinsson að fylgjast með því hvort þeim tækist ætlunarverkið. Ellefu nemendur eru í vetur á miðstiginu í Langanesbyggð, í fimmta til sjöunda bekk.
Þeir nota Jenga-kubba og eftir því sem turninn hækkar vex spennan.
Að því kemur að turninn verður það hár að krakkarnir þurfa að færa borð að honum. Þá geta þeir staðið uppi á borðinu til að geta haldið áfram að hækka turninn.
Klippari fréttastofu Sýnar, Magnús Guðlaugur Magnússon, setti saman þetta myndskeið þar sem atburðarásinni er hraðað. Hér má sjá hvernig gekk:
Í þætti um samfélagið á Þórshöfn var grunnskólinn heimsóttur. Þáttinn í heild má nálgast hvenær sem er á streymisveitu Sýnar, sem og alla aðra þætti í röðinni Um land allt.
Hér er sýnishorn af efni þáttanna: