„Við erum ekki með börn í forgangi. Við erum ekki með börn sem eru í vanda í forgangi,“ segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar.
Hann segir sögu Arnars Atla Björnssonar, sem svipti sig lífi síðastliðið sumar 24 ára gamall, harmasögu sem opinberi að það gangi ekki lengur að kerfin bendi hvert á annað.
„Svona eru líf fjölmargra sem eru í mjög flókinni stöðu, því miður, kerfin eru ekki að tala saman. Þau eru ekki að rýna neitt,“ segir Grímur.
Fjallað var um Arnar Atla í Kastljósi í kvöld. Amma hans, sem ól hann upp, lýsir því hvernig hann féll ítrekað á milli kerfa og fékk ekki þjónustu við hæfi. Hann glímdi við alvarlegar geðrænar áskoranir og flakkaði árum saman milli búsetuúrræða og stofnana. Hann þurfti mikla og sérhæfða þjónustu en þegar aðstandendur óskuðu eftir aukinni aðstoð virtist fátt standa til boða.
„Það er alveg ljóst að þetta er áralöng saga og með mjög mörgum vondum ákvörðunum sem enda ekki vel,“ segir Grímur.
Arnar Atli bjó í búsetuúrræðinu Klettabæ um skeið, þangað til hann varð 21 árs. Þar fékk hann mikla þjónustu og var með þrjá starfsmenn með sér öllum stundum. Grímur segir ekkert taka við eftir barnakerfið og veltir fyrir sér hvort svona umfangsmikið inngrip hjálpi einstaklingum þegar þeir verða fullorðnir. „Sumar rannsóknir segja að þegar við förum í svona mikið inngrip eins og er verið að lýsa hérna, þá í besta falli gerist lítið. Svo getum við spurt hvað gerist síðan?“
Alls konar fólk sem hafi brugðist
Grímur tekur fram að Reykjavíkurborg hafi bestu búsetuúrræðin fyrir fólk með flókinn vanda. „Hin sveitarfélögin komast ekki með tærnar þar sem Reykjavík hefur hælana, en það afsakar ekki neitt.“ Hann segir geðdeildir ekki í stakk búnar að taka á fjölþættum vanda.
„Það er alls konar fólk sem hefur væntanlega brugðist í hans lífi,“ segir Grímur sem telur að koma hefði mátt í veg fyrir einhver áfallanna sem Arnar Atli varð fyrir.
„Ofbeldi er kannski ekki vegna geðrænna vandamála heldur bara vegna jaðarsetningar og hvernig við komum fram við fólk sem okkur finnst vera öðruvísi en við,“ segir Grímur. Hann segir mikilvægt að hugsa um hvernig geðvænt samfélag sé. „Ég held að við þurfum að breyta mjög mörgu.“
Viðtalið við Grím má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan.