Flókið verður að komast til botns í því hver stóð að baki netárás á vefhýsingarfyrirtækið 1984 í liðinni viku, segir forstöðumaður CERT-ÍS. Málið sé á borðum sveitarinnar og ríkislögreglustjóra og til rannsóknar hvort hæfur glæpahópur eða ríkisstuddur ógnarhópur hafi staðið að baki henni.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu í gær kom fram að margt benti til þess að markmið árásarinnar hefði verið að taka niður vefsíður sem styðja málstað Palestínu. Formaður félagsins Ísland-Palestína sagði í hádegisfréttum að vefsíða félagsins væri líklega ónýt og telur árásina hafa verið árás á tjáningarfrelsið.
„Þetta er í rauninni bara eitt af því sem við erum að skoða. Jú, við höfum fengið gögn sem geta bent til þess og í raun er það bara eitt af mörgu sem við erum að skoða þessa stundina,“ segir Magni Sigurðsson, forstöðumaður CERT-ÍS, netöryggissveitar íslenskra stjórnvalda.
Á borði ríkislögreglustjóra
Magni segir málið á borði ríkislögreglustjóra, en sveitinni beri að tilkynna alvarleg tilvik sem þetta þangað. Það hafi þegar verið gert.
„Þetta er tímafrekt verkefni og verður sérstaklega snúið og flókið þegar gervigreind er nýtt við árás. Þá verður mun erfiðara að rekja fótspor árásaraðila og hvað honum gengur til, hvort um hreinlega hæfan glæpahóp sé að ræða eða ríkisstuddan ógnarhóp. Þetta er í rauninni bara eitt af því sem við höfum verið að greina og rannsaka í kringum þau gögn sem við höfum fengið.“
„Þannig að í rauninni á þessari stundu útilokum við ekki neitt en kannski ekki beint tímabært að draga ályktanir um hver sé að baki árásinni að svo stöddu.“
Flókið að komast til botns í málinu
Aðspurður segir Magni erfitt að meta hvort hreinlega verði nokkurn tíma upplýst hver hafi staðið að baki árásinni.
„Eins og ég segi er það erfitt að segja. Það er mikið af gögnum sem þarf að fara yfir en við höfum verið með alla fálma úti og kallað eftir upplýsingum frá erlendum systurstofnunum og öflugum samstarfsaðilum sem við höfum sem gætu gefið okkur vísbendingar um hver standi þarna á bakvið. Síðan er það, ef til dæmis um ríkisstuddan ógnarhóp er að ræða, þá er það í höndum ríkislögreglustjóra að rannsaka það nánar.“