Virði innihalds jóladagatala er oft minna en verðið gefur til kynna. Neytendur gætu átt rétt á endurgreiðslu ef varan stendur ekki undir væntingum.
Það er af sem áður var þegar eina jóladagatalið sem var í boði var Lions-súkkulaðidagatalið. Núorðið fæst nánast allt milli himins og jarðar í formi dagatals, bæði fyrir börn og fullorðna. „Ég held að það sé orðin einhver spenna fyrir fólk, að hafa eitthvað spennandi í desember,“ segir Karen Ómarsdóttir, afgreiðslukona í Nespresso. „Við erum búin að vera með dagatal í mörg ár og það eru alltaf að vaxa vinsældir á því.“
Kaffidagatal Nespresso seldist strax upp þegar það kom út í byrjun mánaðar. Karen bendir á að dagatalið innihaldi ekki bara kaffi heldur einnig stóran glaðning á aðfangadag.
Aðalheiður Ragnarsdóttir, verslunarstjóri í Hagkaup Smáralind, segir að úrvalið á dagatölum hafi sjaldan eða aldrei verið meira. Dæmi séu um að fólk komi og kaupi jóladagatal handa sjálfu sér. „Það er svo margt spennandi í boði fyrir allan aldur,“ segir Aðalheiður.
Meðal annars er hægt að fá dagatöl með snyrtivörum, íþróttatreyjum, orkudrykkjum eða snakki, svo fátt eitt sé nefnt. Leikfangadagatöl eru vinsæl fyrir börn, ekki síður en sælgætisdagatöl.
Virði innihalds jóladagatala er þó ekki alltaf í samræmi við verðið. „Þú kaupir ekki jóladagatal fyrir súkkulaðið sem er í því heldur fyrir skemmtunina sem er að fá eitthvað óvænt,“ segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna. „Ef þú ætlar að fá gæða súkkulaði þá er miklu sniðugra að kaupa það bara og vita hvað það er, en það er þetta óvænta sem fólk er að leita eftir þegar það kaupir sér jóladagatal.“
Sem dæmi má nefna jóladagatal Nocco. Langar raðir mynduðust þegar Nocco-dagatalið kom út í fyrra. Það kostaði ellefu þúsund og innihélt 24 mismunandi tegundir af orkudrykknum. Ef dósirnar væru keyptar í stykkjatali úti í búð fengjust helmingi fleiri dósir fyrir sama pening. Aftur á móti voru í dagatalinu tegundir sem eru ekki í almennri sölu.
Skims, fyrirtæki Kim Kardashian, hefur setið undir ámæli fyrir að rukka 18 þúsund krónur fyrir dagatal sem innihélt tólf pakka með vörum sem augljóslega voru mun minna virði, eins og hárspennur og teygjur.
Á samfélagsmiðlum líktu sumir innihaldinu við dót sem fólk finnur undir sófa hjá sér eða undir sófapúðunum. Enda fór það svo að dagatalið var tekið úr sölu og þeim sem höfðu keypt það var boðin inneignarnóta hjá fyrirtækinu.
Fyrir hver jól berast Neytendasamtökunum tilkynningar um dagatöl sem ekki standast kröfur. „Við höfum í gegnum tíðina fengið dæmi um að það hafi verið skemmdar vörur eða vörur komnar yfir dagsetningu eða gefið út eitthvað svona jólabjóradagatal og helmingurinn af því var ekkert jólabjór og svo framvegis, sem svona jaðrar við vörusvik og í slíkum tilvikum á fólk að fá endurgreitt það sem það lagði út,“ segir Breki.